Markmið

Markmið þjálfunarinnar er bæta tæknilega getu iðkanda og veita honum þá athygli sem hann þarf til að taka framförum.

Tímasetningar og breytingar

Tækniþjálfun Gylfa Sig áskilur sér rétt til þess að breyta æfingatímum og staðsetningu og að fella niður æfingar vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna. Tilkynningar berast iðkendum í gegnum Abler-appið.

Mæting Gylfa

Gylfi Þór Sigurðsson er ekki að öllum líkindum á öllum æfingum vegna eigin leikja og þjálfunar með félagi eða landsliði. Aðrir hæfir þjálfarar stýra æfingum þegar svo ber undir.

Ábyrgð

Tækniþjálfun Gylfa Sig ábyrgist hvorki slys né annars konar meiðsli sem iðkandi kann að verða fyrir á æfingum.

Þátttaka

Iðkendur geta ekki skipt um hóp, sent staðgengla eða framselt pláss til annarra. Skráning er ekki framseljanleg.

Gjöld

Þátttökugjöld eru ekki endurgreiðanleg nema iðkandi leggi fram læknisvottorð um alvarleg eða langvarandi meiðsli eða veikindi.

Greiðslur

Þátttökugjöld þarf að greiða fyrir fyrstu æfingu, annars er heimilt að synja iðkanda um þátttöku.

Mynd- og myndbandsréttindi

Iðkendur samþykkja að myndbandsupptökur séu nýttar í markaðstilgangi og megi birta á samfélagsmiðlum. Beiðnir um undanþágu má senda á info@taeknithjalfun.is.

Skrá á næstu önn →